Sumartilboð

Við erum ekki mikið fyrir tilboðin en gerum eins og undanfarin ár að bjóða mánaðarkort á 6600kr í sumar, frjáls mæting í allt.  Einnig erum við með skólatilboð til allra framhaldsskóla á Akureyri, HA,MA,VMA,Myndlistarskólinn og er tilboðið til nemenda og starfsfólks skólanna. Árskort á 35000kr. ef keypt er fyrir 1. júní.  Skólarnir hafa þurft að safna 100manns á lista til að fá afsláttinn en núna er ekkert þannig.  Kortið gildir í allt í sumar, en frá og með 1. september gildir það í tækjasal, útisvæði, potta og aðra sali þegar engir tímar eru í gangi.  Til stelpnanna sem voru í Zumbu bjóðum við að leggja kortin inn þangað til við finnum nýjan kennara eða fram á haust þegar skýrist hver verður með dansinn næsta vetur.