Á þessu námskeiði verður lögð áhersla á styrktarþjálfun ásamt því að ná púlsinum upp. Styrktaræfingar eru gerðar með handlóðum, ketilbjöllum, teygjum og líkamsþyngd.
Námskeiðið er kennt í heitum sal þar sem infrared plötur hita líkamann.
Námskeiðið hentar bæði þeim sem eru vanir og óvanir, það verður farið vel í lyftingartækni í styrktaþjálfun og hver og einn fer á sínum hraða.
Námskeiðið byrjar 19. maí og stendur til 25. júní, kennt verður á , þriðjudögum og fimmtudögum kl 06:05-07:00.
Kennari er Elísabet Eik
Innifalið í námskeiði: Aðgangur að tækjasal, aðgangur að öllum opnum tímum, heitur og kaldur pottur og sána. "áskriftin" tekur gildi um leið og skráning fer fram, það er því hægt að byrja að nota opna tíma og tækja sal þar til námskeiðið byrjar.