Sumartaflan tekur við 13. maí

Við ætlum að setja sumartöfluna í gang 13. maí.  Heitur þrektími og spinning kl 6:10, morgunþrek, spinning og Hot Yoga kl 8:15.  Hádegisþrekið verður á sínum stað.  Hot Yoga tvisvar í viku seinni partinn, tveir spinningtímar, súperkeyrsla, tveir Gravitytímar og heitur þrektími hjá Öbbu og nýr tími hjá Guðríði og Andreu í hitanum.  Þær ætla að nota foamrúllur og nudda og teygja á líkamanum.  Geysivinsælir tímar í Sporthúsinu og henta öllum, ekki síst þeim sem æfa mikið og eru stífir og stirðir. Erum að leita að nýjum Zumbakennara og vonandi tekst þá að setja inn einn eða tvo Zumbatíma.