Sumartaflan tekur gildi 26. maí

Um helgina tekur sumartaflan okkar gildi, þá bætast við skemmtilegir þrektímar seinniparta sem henta öllum því hægt er að aðlaga bæði þyngdir og hraða. Kennarar í tímunum leggja sig fram um að leiðbeina þannig að allir viti hvernig hreyfingarnar eiga að vera og sér til þess að þær séu rétt framkvæmdar. Sumarið er svo sannarlega tíminn til að safna orku vera í góðu formi. Regluleg hreyfing er besta leiðin til að auka orku. Hlökkum til að sjá þig í sumar!

Sumarkortasalan er í fullum gangi, kortið tekur gildi frá kaupdegi og gildir fram til 31. ágúst.