Sumartafla!

Í dag tekur sumartaflan okkar gildi. Hún er fjölbreytt að venju en hægt er að velja um 25 opnatíma fyrir korthafa stöðvarinnar auk þess sem hjólahópur hjólar héðan tvisvar í viku og hlaupahópur UFA hleypur eins og á hverju sumri. Auk þess höfum við bætt...<P>Í dag tekur sumartaflan okkar gildi. Hún er fjölbreytt að venju en hægt er að velja um 25 opna tíma fyrir korthafa stöðvarinnar auk þess sem hjólahópur hjólar héðan tvisvar í viku og hlaupahópur UFA hleypur eins og á hverju sumri.&nbsp;Að venju er allir velkomnir að hjóla og&nbsp;hlaupa ókeypis með. Auk þess höfum við bætt við tveimur útitímum þar&nbsp;sem allir eru velkomnir og eru allir þessir tímar&nbsp;einnig að kostnaðarlausu. Ekki þarf að eiga kort til að vera með.&nbsp;Annar er á miðvikudagsmorgnum kl. 9:30 og hinn er 17:30 á fimmtudögum og heitir hlaup/þrek. Þessi tími er ætlaður þeim sem eru að byrja að skokka. Farið verður hægara yfir og teknar verða æfingar með hlaupunum. Þeir sem vilja meiri hraða geta farið með hlaupahóp UFA sem fer af stað á sama tíma. </P> <P>Um að gera fyrir þá sem eru leiðir á að vera í sömu tímum að prófa eitthvað nýtt og spennandi. En fyrir hina, þá eru vinsælustu tímarnir sem hafa haft bestu mætinguna&nbsp;í vetur enn á sínum stað. Það finna vonandi allir eitthvað við sitt hæfi.</P>