Sumarparadís á Bjargi

Body Balance og sólbað
Body Balance og sólbað
Eins og allir vita er veðrið búið að vera frábært undanfarið og við búin að vera með þjálfun úti á útisvæðinu okkar. Abba var með Body Balance á útipallinum á laugardagsmorgninum, Eins og allir vita er veðrið búið að vera frábært undanfarið og við búin að vera með þjálfun úti á útisvæðinu okkar.  Abba var með Body Balance á útipallinum á laugardagsmorgninum, eitthvað sem hana er búið að dreyma um lengi og það var æðislegt að gera jógaæfingarnar með sólina og andvarann á vanganum.  Þetta var síðasti laugardagstíminn en ef veður er svona gott munum við auglýsa Balance stundum á laugardögum í sumar.