Spinningáskorun í mánuð.

Spinningáskorun Bjargi hefst í dag. Þar erum við að hvetja fólk til að prufa spinning og mæta í nokkra tíma vikulega og finna áhrifin. Tilboð verður á mánaðar þrekkortum meðan á áskorun stendur, 10.000 kr. Það eina sem þarf að gera er að skrifa nafn sitt á miða í hvert sinn sem mætt er í spinning og setja í kassa inní salnum. Þeir Sem mæta oft eiga því meiri möguleika á að vinna verðlaunin sem verða dregin út um miðjan næsta mánuð. 6 mánaða þrekkort er í verðlaun,  verðmæti um 56.000 kr.