Skráningin í námskeiðin fer vel af stað

Fyrsta auglýsingin kom í gær og það er strax fullt á tvö námskeið, nýtt útlit kl 16:30 og Gravity kl 17:30.  Við skráum samt á biðlista ef ske kynni að það myndi losna.  Hvetjum alla til að koma og borga og líka að láta mæla sig.  Gott að klára mælingarnar fyrir þau sem ætla á lífsstílsnámskeið eða nýtt útlit.  Þegar búið er að borga námskeið má byrja að æfa og þannig er hægt að næla sér í hálfan til heilan mánuð aukalega og gott að liðka sig aðeins áður en átökin hefjast.  Ef einhver er efins hvað hentar þá er sjálfsagt að hringja í Öbbu og spyrja hana, s 869511.  Hún er líka mikið á staðnum núna og getur mælt og svarað spurningum út í eitt.