Skemmtileg ferð!!

Það var vel troðið í pottana á eftir!
Það var vel troðið í pottana á eftir!
37 manns tóku þátt í ferð hjólahópsins til Grenivíkur og tilbaka. 30 sigldu með Húna í frekar köldu en björtu veðri. Útsýni frábært og líka gott niðri í hitanum, kaffinu og Prins Pólóinu. 37 manns tóku þátt í ferð hjólahópsins til Grenivíkur og tilbaka.  30 sigldu með Húna í frekar köldu en björtu veðri.  Útsýni frábært og líka gott niðri í hitanum, kaffinu og Prins Pólóinu.  7 manns komu á móti okkur, á hjóli eða í bíl en allir hjóluðu undan norðanáttinni og heim og gekk ferðin vel og var bara frekar létt að hjóla þrátt fyrir að það gránaði í Vaðlaheiðinni.  Gott var að fara í heitu pottana og gufuna á eftir og maturinn frá Nings var góður.  Myndir eru á leiðinni inná myndasíðuna.  Myndasmiðurinn var reyndar með þeim síðustu í mark og náði fáum hjólamyndum og væru þær því vel þegnar hjá þeim sem kannski gáfu sér tíma til að mynda á leiðinni.