Síðustu dagarnir í gamla kerfinu

Það eru bara tveir dagar eftir í gamla kerfinu.  Sniðugt hjá öllum sem eiga kort á gamla verðinu að láta reikna sig upp og ákveða hvað á að gera við summuna.  Halda áfram í tækjasalnum eða nota þetta í tíma hjá einhverjum.  Þökkum öllum sem hafa verið með okkur í þessi 13 ár en hlökkum til að breyta og takast á við ný verkefni með ykkur.  Vonumst til að geta greitt úr öllum vandamálum og sérþörfum viðskiptavina okkar eins og við höfum gert hingað til.  Spyrjið bara nógu mikið og tékkið á þessu öllu í opnu vikunni.