Síðubitar

Sumir muna eflaust eftir Síðubitunum 6 sem fengu fría einkaþjálfun hér sl. haust og kepptu sín á milli. Núna ætlum við að gefa fleirum tækifæri.Sumir muna eflaust eftir Síðubitunum 6 sem fengu fría einkaþjálfun hér sl. haust og kepptu sín á milli.  Núna ætlum við að gefa fleirum tækifæri, eða um 40 manns.  Þú skráir þig á 12 vikna námskeið, klárar það og færð svo að æfa frítt næst 12 vikurnar hér á Bjargi.  Notar það sem þú lærðir á námskeiðinu varðandi mataræði og hreyfingu.  Allir þurfa að setja sér markmið fyrir þessar 12 vikur sem við þurfum að samþykkja.  Ef viðkomandi stendur við sín markmið er von á enn meiri vinningum.  Ef þú klikkar þart þú að borga fyrir vikurnar 12.  Sjá nánar undir Lífsstíll.