Rannveig önnur í mark

Hluti hlauparanna frá Akureyri
Hluti hlauparanna frá Akureyri
Reykjavíkurmaraþon var um síðustu helgi og var dágóður hópur frá Akureyri sem tók þátt.Reykjavíkurmaraþon var um síðustu helgi og var dágóður hópur frá Akureyri sem tók þátt. Rannveig Oddsdóttir náði frábærum árangri í heilu maraþoni, kom önnur í mark í kvennaflokki og hún var einnig annar Íslendingurinn sem kom í mark.  Tíminn var góður 3:06.38 klst.  Davíð Hjálmar Haraldsson varð fyrstur í 10 km hjá 60-69 ára og Steini P. sjötti, flott hjá körlunum.  Ella Hjalta varð 8. í mark í 10 km í sínum flokki.  Einar Eyland og Jón Harðar sjúkraþjálfari voru að hlaupa hálft maraþon í fyrsta sinn og kláruðu með stæl.  Petrea, Hildigunnur, Ögmundur, Ingi Rúnar, Óli og fleiri voru með í 10 km og Soffía og tvíburarnir á myndinni hlupu skemmtiskokk.