Partýdagur á laugardag 22. okt.

Tryggvi í hljómsveitarspinning fyrir ári síðan
Tryggvi í hljómsveitarspinning fyrir ári síðan
Það verður partýdagur hjá okkur næsta laugardag. Nóg að gera frá 9-18. Fyrst verður Ólatími kl. 09:00 um morguninn. Body balance kl. 10:30, lífsstíll og karlapúl kl. 11:30 og Body Jam kl. 13:00.

Það verður partýdagur hjá okkur næsta laugardag.  Nóg að gera frá 9-18.  Fyrst verður Ólatími kl. 09:00 um morguninn.  Body balance kl. 10:30, lífsstíll og karlapúl kl. 11:30 og Body Jam kl. 13:00.  Ef þið viljið skemmtilegan dans þá mætið þið í jammið, nýtt prógramm, geggjað. 

Svo hefst aðal stuðið kl. 15:00, þegar fyrsti tíminn í hljómsveitarspinning verður.  Annar tími er svo kl. 16 og sá þriðji kl. 17.  Það er enn laust í tímann kl. 16:00 og um að gera að skrá sig strax, listarnir komu upp í gær og það er pláss fyrir 30 manns í tíma.  4 manna hljómsveit mun spila og þetta er ótrúlega skemmtileg upplifun.