Opin vika, ódýr kort.

Opna vikan byrjaði í morgun með spinningtíma hjá Tryggva.  Hvetjum alla til að nota tækifærið og prufa tíma.  Nýji þreksalurinn er svakalega stór og flottur og rúmar léttilega 80 manns í tíma.  Hann er líklega einn stærsti þreksalur landsins, bjartur og vel búin.  Munið svo eftir ódýru kortunum í tækjasalinn, frábær kostur fyrir þá sem eru bara að lyfta og hlaupa.  Nú eru spinninghjól í salnum og alltaf hægt að skella sér á efri hæðina ef það er ekki tími þar og gera sínar æfingar.