Nýr lífsstíll, 7 vikur framundan

Við erum að klára fyrstu 7 vikurnar á lífsstílsnámskeiðunum. Nokkrar bara skráðar á 7 vikna námskeið og hætta því núna. Við erum að klára fyrstu 7 vikurnar á lífsstílsnámskeiðunum.  Nokkrar bara skráðar á 7 vikna námskeið og hætta því núna.  Flestir eru á 14 vikna námskeiði.  Það er því laust fyrir nokkra einstaklinga á morgunnámskeiðinu kl 09:30 og kvöldnámskeiðinu kl 18:30.  Síðasti tíminn er á mánudeginum fyrir þá sem eru að hætta og verðlaun verða afhent fyrir besta árangurinn í kg, cm og mætingu.  Nokkrar eru að ná 10% léttingu á 8 vikum sem er glæsilegt, og margir búnir að losa sig við 2-8 kg á þessum tíma og 10-25cm.  Mætingin er frábær og þeir sem koma oftar en þrisvar í viku eru að bæta sig og finna hvað úthaldið er betra og líkaminn sterkari.  Við vorum með aukatíma í Hot Yoga fyrir hópinn í síðustu viku en Hot Yoga á að ýta undir fitubrennslu og því hjálpa til við að létta sig.