Nýr Balance

Abba frumflutti nýjan Body Balance í gær.  Öflugar og spennandi stöður, skemmtilegt Tai Chi og flott tónlist.  Við kennum í nýja Hot yoga salnum þannig að það er alltaf volgt inni.  Ef aðsóknin verður mikil færum við tímana uppá efri hæðina í stóran sal.  Body Balance er fyrir alla sem vilja liðkast, róa hugann, bæta jafnvægið og flæðið í líkamanum.