Notalegt í Hot Yoga

Abba kennir Hot Yoga
Abba kennir Hot Yoga
Það var góð stemming í Hot Yoga á þriðjudaginn. Byrjuðum námskeiðið og svo var opinn tími á eftir sem virtist mælast vel fyrir. Flestir voru hissa á því hvað þeim leið vel í hitanum og fundu fyrir auknum liðleika og vellíðan. Það var góð stemming í Hot Yoga á þriðjudaginn.  Byrjuðum námskeiðið og svo var opinn tími á eftir sem virtist mælast vel fyrir.  Flestir voru hissa á því hvað þeim leið vel í hitanum og fundu fyrir auknum liðleika og vellíðan.  Við vorum með salinn í ca 37°hita sem er gott til að byrja með.  Það þarf að skrá sig í opnu tímana og það er pláss fyrir 28 manns.  Það var vel troðið á þriðjudaginn og full skráning fyrir sunnudaginn.  Byrjum að skrá fyrir næstu viku á laugardag kl 09:00.  Hvetjum alla til að prufa og strákar, þetta er líka fyrir ykkur.  Mætið léttklædd, með eitt lítið handklæði og annað stærra ef þið eruð vön að svitna mikið.