Námskeiðin að byrja í næstu viku.

Flest námskeiðin byrja í næstu viku.  Við munum hringja í biðlistana um helgina og flestir munu komast inn en fullt er á Dekurnámskeiðið og Nýtt útlit.  Tvö pláss eru laus á Gravitynámskeiðinu kl 16:30 og nóg pláss kl 9:30.  Við höfum pláss fyrir fleiri á Lífsstílsnámskeiðinu sem fimmtudaginn 3. sept. Þau sem skrá sig þar hafa aðgang að öllum öðrum lokuðum námskeiðum.  Lífsstíllinn klárast um miðjan desember og fá allir sem klára námskeiðið að æfa frítt út árið.