Matreiðslukennsla aftur um næstu helgi

Það voru margir sem voru í burtu um síðustu helgi og því lofaði Abba að hafa aftur kennslu um næstu helgi. Hún er ekkert voðalega ánægð með mætinguna síðast, það voru 40 skráðir en 20 mættu. Það voru margir sem voru í burtu um síðustu helgi og því lofaði Abba að hafa aftur kennslu um næstu helgi.  Hún er ekkert voðalega ánægð með mætinguna síðast, það voru 40 skráðir en 20 mættu.  Ef þetta verður svona um næstu helgi er ekki hægt að bjóða upp á þessa kennslu oftar.  Það er lágmark að láta vita. En það er kominn upp skráningarmiði og hann gildir fyrir öll námskeið í stöðinni, lífsstíl, Gravity, Vo2max og Gravity Pilates.