Margt á döfinni!

Um næstu helgi verðum við með kynningu á stöðinni á Glerártorgi. 19.-20. og 21. október koma Þorbjörg og Umahro hingað og verða með námskeið í Grunnreglunum 10 sem er fræðslu- og matreiðslunámskeið.Um næstu helgi verðum við með kynningu á stöðinni á Glerártorgi.  19.-20. og 21. október koma Þorbjörg og Umahro hingað og verða með námskeið í Grunnreglunum 10 sem er fræðslu- og matreiðslunámskeið. Einnig námskeið þar sem sveppasýkingarnar eru teknar fyrir og 12 vikna áætlun til að losna við uppþembu.  Þorbjörg ætlar svo að taka fólk í einkatíma í næringarþerapíu.  Hann mun svo vera með fyrirlestur um næringu og íþróttir. Þetta er spennandi og endilega látið skrá ykkur tímanlega til að missa ekki af plássi.  Fyrstu helgina í nóvember verður svo kennaranámskeið í Fit-Pilates, sem er Pilates á boltum.