Lífsstílsnámskeið og 2-6 mánaða þrekkort fyrir 10% léttingu á 8 vikum.

Gaman, gaman.  Lífsstílsnámskeið verður í boði í haust.  Við verðum með einn hóp á eðaltíma, kl. 17:30 á mánudögum og fimmtudögum og þriðji tíminn er kl. 11:30 á laugardögum.  Þetta er aðhaldsnámskeið fyrir alla sem vilja komast í þokkalegt form, taka mataræðið í gegn og vera í skemmtilegum hóp.  Breyttur lífsstíll er að gera hreyfingu og hollt mataræði að lífsstíl ekki kúr. Hentar öllum og er kannski góður kostur fyrir þá sem leggja ekki í FIMM/TVEIR námskeiðið en þar eru aðeins meiri kröfur og æfingarnar lágmark 5x í viku. Abba mun halda utanum hópinn og Hómríður og Óli kenna tímana á móti henni.  Þar verur farið í alla þætti líkamsræktar og tímarnir verða fjölbreyttir.  Bjóðum uppá 8 eða 15 vikna námskeið sem byrjar 28. ágúst.  Allir sem klára 15 vikur (11. des.) æfa frítt út árið.