Hlaupanámskeið UFA og Bjargs!

Eftir verslunarmannahelgi verður boðið uppá 5 vikna hlaupanámskeið, loksins, loksins. Það verður hlaupið frá Bjargi 3x í viku, mánudögum og fimmtudögum kl 17:30 og laugardögum kl 10:00. Eftir verslunarmannahelgi verður boðið uppá 5 vikna hlaupanámskeið, loksins, loksins.  Það verður hlaupið frá Bjargi 3x í viku, mánudögum og fimmtudögum kl 17:30 og laugardögum kl 10:00.  Rannveig Oddsdóttir langhlaupari og Guðrún Helga Kristjánsdóttir íþróttakennari munu leiðbeina.  Verð er 5000kr og innifalið í því er leiðbeining, sturtur, heitir pottar, gufuböð og glæsileg útiaðstaða á Bjargi til að æfa og teygja. Akureyrarhlaupið er 16. september og verður boðið uppá leik í sambandi við það hlaup.  Þú setur þér markmið í samráði við kennara og þeir sem ná þeim fá mánaðarkort á Bjargi.  Skráning á svanni@centrum.is.  Allir út að hlaupa!!!