Hlaupahópur á Bjargi

Teigt á pallinum góða eftir hlaup og þrek
Teigt á pallinum góða eftir hlaup og þrek
Afrekskonurnar Rannveig og Sonja (gleymdi að segja frá þeirra sigrum í hlaupum sumarsins hér á síðunni, Rannveig sigurvegari í hálfmaraþoni í Reykjavík og SonjaAfrekskonurnar Rannveig og Sonja (gleymdi að segja frá þeirra sigrum í hlaupum sumarsins hér á síðunni, Rannveig sigurvegari í hálfmaraþoni í Reykjavík og Sonja sigraði styttri vegalengdina í Óshlíðarhlaupinu)ætla að vera með hlaupahóp áfram í vetur.  Mæting kl 17:30 á þriðjudögum við Bjarg og frítt fyrir korthafa á Bjargi en 10000kr fram að áramótum fyrir aðra.  Innifalið er hlaupaleiðsögn tvisvar í viku og aðgangur að búningsherbergjum, pottum og gufuböðum á Bjargi.  Hópnum verður getuskipt og ættu allir að finna sinn stað innan hópsins.
Fyrsti tíminn er á morgun.