Hlaup á færibandi

Það verður kosningahlaup á morgun, hálft maraþon sem verður ræst frá Átaki og hlaupið inní fjörð og tilbaka. 1.maí hlaupið er svo á sínum stað, með alla sína aldursflokka og 3 og 10km. Svo verður Akureyrarhlaupið fellt inní landsmótiðÞað verður kosningahlaup á morgun, hálft maraþon sem verður ræst frá Átaki og hlaupið inní fjörð og tilbaka.  1.maí hlaupið er svo á sínum stað, með alla sína aldursflokka og 3 og 10km.  Svo verður Akureyrarhlaupið fellt inní landsmótið í sumar.  Þar verður keppt í fyrsta skipti í heilu maraþoni á landsmóti og á Akureyri að við höldum.  Einnig hálfu, 10 km og skemmtiskokki.  Þetta hlaup verður 11. júlí.  Það er ekki of seint að byrja að skokka, sérstaklega ef þið hafið verið dugleg að æfa í vetur, spinning og þrektímar t.d. er góður undirbúningur.  það er hægt að finna hlaupaprógrömm á ýmsum síðum erlendum sem íslenskum og svo er Óli að hugsa um að vera með hlaupanámskeið fyrir byrjendur og byrja þá í maí.