Góð aðskókn!

Bæjarbúar eru að notfæra sér að koma til okkar og skoða, æfa og prófa tímanna hjá okkur núna í opnu vikunni. Til dæmis þá komu í konutímann á mánudag 54 konur og þó að þröngt væri þá skein bros úr hverju andliti og eins og stelpunum einum er lagið þá tókst þeim að nota plássið og létu ekkert á sig fá þó að það væri örlítið farið að þrengjast....Bæjarbúar eru að notfæra sér að koma til okkar og skoða, æfa og prófa tímanna hjá okkur núna í opnu vikunni. Til dæmis þá komu í konutímann á mánudag 54 konur og þó að þröngt væri þá skein bros úr hverju andliti og eins og stelpunum einum er lagið þá tókst þeim að nota plássið og létu ekkert á sig fá þó að það væri örlítið farið að þrengjast. Um helgina og núna í byrjun vikunnar ættu flestir að vera komnir með okkar árlega Bjargs blað inn um lúguna þar sem vetrardagskráin er kynnt og ýmis fróðleikur og viðtöl eru. Ef að einhverja hluta vegna þið hafið ekki fengið blaðið þá er hægt að koma hingað á Bjarg skoða sig um og sækja sér eitt blað í leiðinni :)