Frumflutningur á Body Pump og Body Balance

Brosmildir Body Balance kennarar!
Brosmildir Body Balance kennarar!
Anna og Jóna frumflytja nýtt Body Pump næsta þriðjudag kl 17:30.  það eru 20 ár frá því fyrsta pumpið kom út og því verður happdrætti og rautt jólaþema í tímanum.  Allir mega taka með sér gesti, kostar ekkert.

Hóffa og Abba munu svo frumflytja nýjan og yndislegan Body Balance á miðvikudaginn kl 18:30.  Verðum líka með jólahappdrætti, kertaljós og rautt jólaþema í þeim tíma.  Gestir velkomnir með.