Frábært á fjallinu

17 manns mættu í gönguna á Rima á sunnudag. Veðrið var æðislegt og færið gott. Fjallið er frekar bratt á köflum og þurfti hópurinn að nota mannbrodda og ísexir en allt gekk vel undir stjórn Halla. 17 manns mættu í gönguna á Rima á sunnudag.  Veðrið var æðislegt og færið gott.  Fjallið er frekar bratt á köflum og þurfti hópurinn að nota mannbrodda og ísexir en allt gekk vel undir stjórn Halla.  Við hittum skíða og brettafólk sem gekk upp á næsta tind við hliðina og renndi sér niður, geggjað. Fylgist með vetrargönguferðum á 24x24.is, það er gaman að labba í snjónum en það þarf leiðsögn og vant fólk til að meta aðstæður hverju sinni.