Frábær mæting í alla tíma og námskeið

Sólrún og Halldóra eftir Body Attack sl. föstudag
Sólrún og Halldóra eftir Body Attack sl. föstudag
Það var ótrúlega góð mæting í alla tíma og tækjasalinn í opnu vikunni. En við héldum að það myndi róast eftir helgina, en það hefur aldrei verið meira að gera en sl. 2 daga.Það var ótrúlega góð mæting í alla tíma og tækjasalinn í opnu vikunni.  En við héldum að það myndi róast eftir helgina, en það hefur aldrei verið meira að gera en sl. 2 daga.  Það sem bættist við var að námskeiðin voru að byrja og á þeim eru um 150 manns. Það er mikil umferð og fullt á bílastæðinu og örtröð í afgreiðslunni þegar þetta er allt að byrja.  En allt gekk þetta upp og allir komust í sinn tíma, það er ekki nauðsynlegt lengur að mæta hálftíma fyrir spinning til að fá hjól, allir hafa fengið hjól undanfarið.