Frábær árangur í Þrekmeistaranum

Öldungaráðið sigraði í liðakeppni 39 ára og eldri í þrekmeistaranum. Í liðinu eru strákar sem æfa hér á Bjargi og voru þeir ekki langt frá Íslandsmetinu og urðu í 4 sæti í opnum flokki, glæsilegt. Birgitta Guðjónsdóttir og Unnsteinn Jónson náðu öðru sæti í parakeppninni. Öldungaráðið sigraði í liðakeppni 39 ára og eldri í þrekmeistaranum.  Í liðinu eru strákar sem æfa hér á Bjargi og voru þeir ekki langt frá Íslandsmetinu og urðu í 4 sæti í opnum flokki, glæsilegt.  Birgitta Guðjónsdóttir og Unnsteinn Jónson náðu öðru sæti í parakeppninni.  Unnsteinn varð líka annar í einstaklingskeppni 39 og eldri og nr 10 í opnum flokki.  Hann vann því til þrennra verðlauna enda hefur hann æft vel í vetur.  Stelpurnar náðu 7. sæti í liðakeppni í opnum flokki en eldra liðið okkar datt út á síðustu stundu vegna veikinda.  Sumar kepptu með hinum og þessum liðum og redduðu þeim.  Sjá nánari úrslit á fitness.is