Frábær árangur á lífsstílsnámskeiðinu

Nú eru sjö vikur búnar á lífsstílsnámskeiðunum og Abba var með smá uppgjör á mánudag og þriðjudag. Tvær konur náðu 10% léttingu á 7 vikum Nú eru sjö vikur búnar á lífsstílsnámskeiðunum og Abba var með smá uppgjör á mánudag og þriðjudag.  Tvær konur náðu 10% léttingu á 7 vikum og fengu 6 mánaða kort í verðlaun.  Aðrar 3 fengu mánaðarkort fyrir flesta sentimetra farna og 6 fengu mánaðarkort fyrir 100% mætingu fyrstu 7 vikurnar.  Það voru um 20 í hverjum hóp með 100% mætingu sem er glæsilegt.