Flottur frágangur

Nú er búið að helluleggja gangstétt meðfram öllu húsinu og njólinn farinn. Bærinn er líka að ganga frá sínu svo nú er allt að verða mjög flott í kringum Bjarg. Nú er búið að helluleggja gangstétt meðfram öllu húsinu og njólinn farinn.  Bærinn er líka að ganga frá sínu svo nú er allt að verða mjög flott í kringum Bjarg.  Sjálfsbjörg mun svo sjá um að mála sinn hluta strax eftir verslunarmannahelgina og þá munum við merkja húsið aftur. Eins og flestir vita hefur bakhliðin á húsinu verið fallegri en framhliðin sl 2 ár, en það er að breytast núna.