Fjölskyldudagur á sunnudag!

Nú er komið að því að krakkarnir fái að æfa með mömmu og pabba. Við ætlum að hafa fjölskyldudag sunnudaginn 25. september.

Nú er komið að því að krakkarnir fái að æfa með mömmu og pabba.  Við ætlum að hafa fjölskyldudag sunnudaginn 25. september. Þá mega allir krakkar (4 ára og eldri) koma og prufa tæki og hlaupabretti, en í fylgd með forráðamanni. Barnagæslan verður opin og við setjum upp þrautabraut fyrir yngstu krakkana.  Hóptími verður kl. 13:00 fyrir 10 ára og eldri.  Munið svo eftir heita pottinum og skyrbarnum.