Fjölmennt á afmælisdeginum!

brauðveisla frá Bakaríinu við brúna
brauðveisla frá Bakaríinu við brúna
16. október fyrir ári síðan opnuðum við nýju aðstöðuna. Hún hefur gjörbreytt öllu hér á Bjargi og fáum við oft að heyra það frá okkar viðskiptavinum.

16. október fyrir ári síðan opnuðum við nýju aðstöðuna.  Hún hefur gjörbreytt öllu hér á Bjargi og fáum við oft að heyra það frá okkar viðskiptavinum.  Samkvæmt Gallupkönnun fyrir ári síðan vorum við með rúmlega 50% af markaðnum hér á Akureyri og teljum við okkur hafa aukið við þá tölu á þessu ári. 

En það var afmæli í gær og Bakaríið við brúna setti upp brauðhlaðborð, rosalega flott og gott.  6 tímar voru í Gravity og vonandi voru allir ánægðir með tímann.  Þetta er ótrúlega sniðugt og öflugt kerfi.  Við þökkum öllum fyrir komuna í gær.