Æðisleg Súluferð!!!!

Við gátum ekki fengið betri dag til þess að fara á Súlur. 25 manns mættu og margir voru að fara sína fyrstu ferð upp en örugglega ekki þá síðustu. Við gátum ekki fengið betri dag til þess að fara á Súlur.  25 manns mættu og margir voru að fara sína fyrstu ferð upp en örugglega ekki þá síðustu.  Rúmlega helmingurinn fór á Syðri Súlur líka, enda fólk í toppformi.  Veðrið var frábært og flestir vel litaðir af sól eftir ferðina. Útsýnið uppi var einstakt og við sáum inn að Herðubreið og alla tindana í Glerárdalnum sem ofurhugarnir fóru um síðustu helgi.  Næsta ferð hjá okkur verður svo í ágúst þegar við förum Heljardalsheiðina, fylgist með hér á síðunni. Fullt af myndum á myndasíðunni.