3 námskeið á dagskrá í næstu viku

Hraustar, Leikfimi 60+ og Rúllur og bolti eru flott námskeið sem eiga að hefjast í komandi viku. SaveHraustar er skemmtilegt námskeið sem ætlað er unglingsstúlkum á aldrinum 12 - 15 ára. Námskeiðið er 2x í viku og áhersla er lögð á fjölbreytta og skemmtilega hreyfingu og eflingu jákvæðrar sjálfsmyndar. Nánari upplýsingar eru hér.

Leikfimi 60+ er kl. 13 á mánudögum og fimmtudögum; skemmtilegur félagsskapur og fjölbreyttar æfingar.  Nánari upplýsingar um námskeiðið er að finna hér.

Rúllur og bolti - mjög gagnlegt 5 tíma námskeið þar sem notast er við rúllur og nuddbolta til að losa um stífa vöðva. Eitthvað sem allir hafa gott af.
Nánari upplýsingar er að finna hér.