100 manns að hlaupa!

Óli og hópurinn góði
Óli og hópurinn góði
Já, við bjuggumst við þessau, það komu nákvæmlega 100 manns á fyrstu æfinguna hjá hlaupahópnum. Við auglýstum þetta fyrir byrjendur og það komu fullt af byrjendum en líka slatti af vönum hlaupurum.

Já, við bjuggumst við þessau, það komu nákvæmlega 100 manns á fyrstu æfinguna hjá hlaupahópnum.  Við auglýstum þetta fyrir byrjendur og það komu fullt af byrjendum en líka slatti af vönum hlaupurum.  Þessir vönu munu fá lengri vegalengdir er byrjendurnir en við höldum áfram að gera æfingar saman.  Frábært að vera úti og margir komu sjálfum sér á óvart og hlupu 2-4 km með stæl. Korthafar á Bjargi geta mætt í hópinn þegar þeir vilja og munið að það er frí barnagæsla.  Næsti tími er á fimmtudaginn kl 17:30.