Lífstíll

Á námskeiðinu er mikið lagt upp úr fjölbreyttri og persónulegri þjálfun. Þátttakendur fá að kynnast ýmiss konar þjálfunaraðferðum, þar sem reynt er á þol, þrek og styrk. Góð fræðsla og mikið aðhald og hvatning er í boði fyrir konur sem vilja stíga réttu skrefin í átt að bættri heilsu.

Innifalið í námskeiðinu er eftirfarandi:
  • Þrír tímar á viku
  • Líkamsástandsmælingar í upphafi og við lok námskeiðs 
  • Vikulegir fróðleiksmolar um næringu frá næringarfræðingi námskeiðsins 
  • Fræðslufyrirlestrar sem Laufey og Guðrún halda á meðan námskeiði stendur
  • Ótakmarkaður aðgangur að tækjasal og opnum tímum meðan á námskeiði stendur 

Tímar: Þriðjudaga og fimmtudaga kl 18:30 og laugardaga kl 10:30