Allir út að hlaupa, Abba er byrjuð!

Já, nú er engin afsökun, Abba ætlar að mæta með hlaupahópi UFA á fimmtudögum og stundum á þriðjudögum. Já, nú er engin afsökun, Abba ætlar að mæta með hlaupahópi UFA á fimmtudögum og stundum á þriðjudögum.  Hún er í engu hlaupaformi og hleypur alein, ef einhver byrjandi er þarna úti þá er lag að mæta.  Hún hékk í hinum ca 500m í gær og dröslaðist svo tæpa 4 km mjög hægt. Við vitum að flestir sem eru að mæta í þennan hóp eru mjög góðir og bestu hlaupakonur landsins eru þarna, ekki láta það fæla ykkur frá.  það var metþáttaka í Gamlárshlaupinu og greinilega margir á skokkinu.