Morgunorka eru hressandi og krefjandi tímar þar sem sköpunargleði þjálfarans fær að njóta sín. Frábær blanda af öllu því besta til að starta deginum.
Rólegur er mjúkur tími í volgum sal. Teygjur, styrkur og slökun.
Hádegistímarnir eru 50 mín og er tekið vel á því. Fátt betra en að brjóta upp vinnudaginn og henda sér í ræktina, kemur margfalt öflugri til baka.
Föstudagsfjörið verður í algleymingi á föstudögum. Hefjum helgina af gleði og keyrum upp steminguna. Föstudagstónlistin í tímunum svíkur engan!
Súperkeyrslan á miðvikudögum er þrektími í erfiðari kantinum.
Kennarar: Tryggvi, Birgitta, Hóffa, Karen Nóa, Hafdís, Kristín