Stella Guðrún sigurvegari í spinningáskorun

Mánaðar spinningáskorun Bjargs lauk í gær.  Góð þáttaka var og 26 manns skráðu sig sem þáttakendur og mættu flestir ótrúlega vel.  Stundum eru tveir tímar á dag og tímarnir eru kl. 6:10, 8:15, 12:10, 17:30 og 18:30 þannig að þeir sem eru í fullri vinnu höfðu ekki tök á að mæta í alla tímana.  28 tímar voru í boði og sigurvegarinn mætti í 24 tíma, missti bara af fjórum.  Við fréttum reyndar að hún hafi verið ein af þeim sem fékk ekki hjól þann 10. okt. á Dömulegum dekurdögum en þá komu rúmlega 40 manns í spinning.  Stella Guðrún Stefánsdóttir er sigurvegarinn og fær þriggja mánaða þrekkort í verðlaun og 10 skipta Boozt kort að auki.  Til hamingju Stella.  Við ætlum að afhenda verðlaunin ef þú kemur í spinning á eftir kl. 18:30.  Margrét Alma kom 20 sinnum og svo voru ansi margir með 15 skipti.