Breytingar á eigendahópi

Um síðastliðin mánaðarmót urðu breytingar á eigendahópi Líkamsræktarinnar Bjargs ehf.  Þau Inga Vala Magnúsdóttir og Sigursteinn Ingvarsson keyptu ásamt núverandi hluthöfum þeim Tryggva Kristjánssyni og Anný Björg Pálmadóttir alla hluti í félaginu.  Í framhaldinu urðu þær breytingar að Tryggvi tekur nú við sem framkvæmdastjóri stöðvarinnar en Sigursteinn mun sjá um fjármál og bókhald félagsins.  Að öðru leyti munu ekki verða stórvægilegar breytingar og hlakka eigendur mikið til komandi missera og munu áfram leggja áherslu á það vinalega umhverfi sem stöðin er þekkt fyrir þar sem allir eru velkomnir.