
Tækjasalurinn okkar er stór og bjartur. Upphitunartækin er 8 skíðavélar frá Scifit, 4 stigvélar og 11 hlaupabretti
frá Technogym, 2 crosscontry tæki frá Technogym, 4 hjól og svo er oftast hægt að komast á eitt af spinninghjólunum 30 sem eru í salnum
á neðri hæðinni ef allt er fullt. Tækin er mörg og fjölbreytt, flest frá Technogym og Jimsa. Mikið af lausum lóðum, stöngum, bekkjum og
boltum.
Þrjár upphífustangir eru í salnum og tvö hringjasett. Gott pláss fyrir
ketilbjölluæfingar, bolta, þyngdarbolta og handlóðaæfingar.
Í salnum eru líka æfingaáætlanir við allra hæfi, fyrir konur og karla, byrjendur sem lengra komna. Öll tækin eru númeruð sem
gerir lífið léttara og auðveldara að fara eftir æfingaplaninu.
Innifalið í kortinu er kennsla á tæki, lóð og bolta svo ekki hika við að leita eftir henni. Þrír þjálfar sjá um þjálfunina veturinn 2012. Andrea Waage, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir og Guðríður Jónasdóttir.
Hafið samband við afgreiðslu og pantið tíma.



