ATH. Nauðsynlegt er að eiga og sýna meðlimakort frá Bjargi líkamsrækt til þess að komast inn á þessar samstarfsstöðvar.
Við erum í samvinnu við:
Árbæjarþrek í Reykjavík, við Árbæjarlaugina. http://www.threk.is/
Veggsport í Reykjavík, Stórhöfða 17, á hægri hönd við Gullinbrú áður en farið er yfir í Grafarvog. www.veggsport.is
Hress líkamsræktarstöð, Dalshrauni 11 Hafnarfirði. Þar getur okkar fólk mætt og æft eins oft og það vill og eins með ykkur sem eigið kort í Hress, velkomin til okkar. Sjá nánar www.hress.is
Sundlaug Dalvíkur, Svarfaðarbraut 34. Þið getið mætt í sund á Dalvík og farið í tækjasalinn þar 8 sinnum í mánuði og Dalvíkingar með kort eru velkomnir á Bjarg 8 sinnum í mánuði. Vefsíða Sundlaugarinnar.
Íþróttamiðstöð Ólafsfjarðar. Sama gildir um þá, sem eiga kort í Íþróttamiðstöðinni á Ólafsfirði. Þar eru tæki frá Technogym. Vefsíða Íþróttamiðstöðvarinnar.
Þreksport á Sauðárkróki, Aðalgötu 20b, gengið inn sjávarmegin. Okkar viðskiptavinir ættu að kannast við upphitunartækin í Þreksporti sem eru líka frá SciFit, þar eru líka Jimsa tæki eins og hjá okkur. Vefsíða Þreksports.
NATURALIS allt um fjallgöngur. Vantar þig leiðsögn? http://www.naturalis.is/
Lífsstíll í Vestmannaeyjum
Lífsstíll í Keflavík



