Hafa samband
headerheaderheaderheader

Hlauparar

6 vikna hlaupanámskeið byrjaði 23. apríl.  Hlaupið er frá Bjargi 2x í viku, á mánudögum og fimmtudögum og á miðvikudögum er farið frá bílaplaninu í

Hlauparar

6 vikna hlaupanámskeið byrjaði 23. apríl.  Hlaupið er frá Bjargi 2x í viku, á mánudögum og fimmtudögum og á miðvikudögum er farið frá bílaplaninu í Kjarnaskógi, kl 17:15.  Sonja, Rannveig og Óli stjórna og stelpurnar verða með 3 fyrirlestra um það sem skiptir máli ef þú vilt ná árangri og geta hlaupið.  Innifalið er frjáls aðgangur að Bjargi og allri aðstöðu þar. Verð 18000kr.

Veturinn 2011-2012 stjórna Rannveig Oddsdóttir og Sonja Sif Jóhannsdóttir hlaupahópnumBjargvættum héðan frá Bjargi tvisvar í viku. Hlaupið er kl. 17:30 á þriðjudögum og fimmtudögum. Korthafar á Bjargi hlaupa frítt með hópnum en aðrir borga 6000 kr. fyrir önnina. Heimasíða www.bjargvaettir.com.
Það eru svo nokkrir hlauparar sem hittast og hlaupa í hádeginu frá Bjargi allan ársins hring. 
Nánari upplýsingar hjá Rannveigu Oddsdóttur, rannodd@hi.is
Við bjóðum alla hlaupara velkomna í stöðina okkar. Þeir fá árskort hér á sérkjörum og leiðbeiningar um góðar æfingar í tækjasal fyrir hlaupara.
Við bjóðum alla hlaupara sem eru á ferðalagi hér um slóðir velkomna. Hjá okkur kostar ekkert að fara í sturtu eða líta í tækjasalinn. Spyrjið um Aðalbjörgu ef einhver tregða er í afgreiðslunni.

Svæði

moya - Útgáfa 1.14 2010 - Stefna ehf