Hafa samband
headerheaderheaderheader

Þjónusta

Fitumælingar, vigtun, sentimetramælingar og þolpróf eru innifalin í korti.  Aðalbjörg sér um þessar mælingar og það má trufla hana hvenær sem er og byðja

Þjónusta

Fitumælingar, vigtun, sentimetramælingar og þolpróf eru innifalin í korti.  Aðalbjörg sér um þessar mælingar og það má trufla hana hvenær sem er og byðja um mælingu.
Hún sér líka um kennslu í tækjasal og það er hægt að panta tíma í afgreiðslu.  Hún kennir á æfingaáætlanir sem eru þar.

Margir hafa beðið um matarleiðbeiningar og erum við því með 14 matseðla í boði hér á síðunni sem eru uppfærðir reglulega.  Þar eru líka uppskriftir og heilræði.

Hægt er að panta Pottana og alla aðstöðu fyrir hópa.  Erum með Þrjá 10 manna potta, tvo úti og einn inni.  Stórt eimgufubað úti og sauna í klefum.  Stór útipallur þar sem hægt er að vera með ýmsar uppákomur.  Tökum á móti óvissuhópum í sprell, dans, Hot Yoga eða annað, 10-60 mínútna hreyfing.
Hægt er að fá nudd á axlir í pottinum, maska og förðun við spegilinn á eftir.  Frábær aðstaða fyrir hópa af öllum stærðum og gerðum.

Dekurhelgi Bjargs er í október á Dömulegum Dekurdögum á Akureyri.   Þá er opið fyrir alla að prufa Hot Yoga, Body Balance, Body Fit og fleiri tíma.  Pottarnir eru opnir, nuddarar bjóða axlanudd, kynningar á snyrtivörum og happdrættisvinningar.

Á fjölskyldudegi Bjargs sem er einu sinni á ári er börnum korthafa boðið að koma með og prufa tækjasalinn, fara í krakkajóga, þrautabraut, pottana og fleira.

Við seljum brúsa, boli og treyjur merkta Bjargi.

Slagorð okkar er NÁTTÚRULEGA  sem vísar í að við seljum ekkert duft eða pillur.  Hjá okkur er hægt að kaupa skyrsmoothie, ávexti og ávaxtasafa.



Svæði

moya - Útgáfa 1.14 2010 - Stefna ehf