Þær kenna á námskeiðinu: Aðalbjörg í ljósbláum bol Adda Þóra bakvið hana í turkisbláum bol og Bryndís
í bleiku.
Loksins er komið námskeið fyrir konur sem eru 50 ára og eldri. 6 vikna námskeið þar sem við hugum að liðleika, styrk, þoli og slökun. Förum létt í mataræðið fyrir þær sem vilja og vel yfir bætiefnin með áherslu á vellíðan og innri kyrrð.
Tímarnir eru kl 8:15 á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum. Næsta námskeið byrjar 29. febrúar 2012.
Bryndís kennir jóga á mánudögum, berfættar við kertaljós, góðar teygjur, hugleiðsla og slökun.
Abba sér um óvænta þrektíma með fullt af skemmtilegum æfingum og nokkrum vel völdum sporum, engir pallar eða hjól.
Adda Þóra kennir svo Body Fit á föstudögum. Góðar æfingar fyrir djúpu kvið og bakvöðvana, rass og læri.
Pilatesæfingar gerðar á og með lítinn og stóran bolta.
Munum líklega bjóða uppá opna tíma fyrir fólk 50 ára og eldra 3x í viku haustið 2012. Möguleiki að kaupa aðgang bara
að þessum tímum sem verða þrektímar sem liðka, styrkja og bæta þolið.



