Hafa samband
headerheaderheaderheader

Nýr lífsstíll

Haustnámskeiðin eru 7 og 14 vikna námskeið sem klárast í byrjun desember. Á árinu 2012 verða í boði 8 og 16 vikna námskeið sem hefjast 9. janúar. Skráning

Lífsstílsnámskeið

Haustnámskeiðin eru 7 og 14 vikna námskeið sem klárast í byrjun desember. Á árinu 2012 verða í boði 8 og 16 vikna námskeið sem hefjast 9. janúar. Skráning hefst í desember.

Við höfum boðið uppá frábær verðlaun til þeirra sem losa sig við a.m.k. 10% líkamsþyngdar.  Það verður áfram í gildi. 
EF ÞÚ LOSAR ÞIG VIÐ 10% AF ÞYNGD Á 8 VIKUM FÆRÐ ÞÚ 6 MÁNAÐA KORT Í VERÐLAUN.
EF ÞÚ LOSAR ÞIG VIÐ 10% AF ÞYNGD Á 16 VIKUM FÆRÐ ÞÚ 2 MÁNAÐA KORT Í VERÐLAUN. 

Lífsstílsnámskeið eru fyrir alla sem vilja og eru tilbúnir að breyta um lífsstíl. Komast af stað í hreyfingunni og taka á mataræðinu.

Við köllum þetta breyttan lífsstíl.  Hvað felst í því?  Læra að hreyfa sig og gera hreyfingu að vana, föstum hluta af þínu lífi.  Þetta gengur oft bara vel.  Það sem er erfiðara er að læra að gera heilsusamlegt mataræði að vana.  Við reynum að kenna fólki að stjórna þessum hlutum og detta inn í rétta taktinn. 14(16) vikur eru fljótar að líða og oft þarf því fleiri en eitt námskeið til að komast í rétta gírinn.  Það er allt í lagi að koma á mörg námskeið í röð og í rauninni bara eðlilegt. Árangurinn hefur verið mjög góður hingað til, kílóin og sentimetrarnir hafa fokið og brosið breikkað á þátttakendum með bættri heilsu og auknu sjálfstrausti.

Við erum alltaf að bæta þetta námskeið og læra af þeim sem mæta, hvað gengur og hvað ekki. Árið 2009 byrjaði Abba á því að senda fræðsluna með netpósti og sparaði þannig pappír og gerði fræðsluna varanlegri fyrir þátttakendur. 

Það er farið hægt af stað og í alla þætti líkamsræktar. Við notum hjól, palla, dýnur, lóð og stangir.  Góðar sjálfberandi æfingar og teygjur. Þetta eru tímar sem allir ráða við og fyrst og fremst reynum við að hafa gaman af þessu.  

Morgunhópur kl. 09:30 á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum. Frí barnagæsla (fyrir 6 mán. - 8 ára) verður þessa morgna og er þessi hópur því hentugur fyrir heimavinnandi og vaktavinnufólk sem má að sjálfsögðu flakka á milli hópa.
Kvöldhópur kl. 18:30 á mánudögum, miðvikudögum annars vegar og á laugardagsmorgnum kl. 10:30.  Hentar vel þeim sem þurfa að nota barnagæsluna.  Hún er til 19:30 á virkum dögum og til 12:30 á laugardögum (fyrir 2gja - 8 ára.)

VEGLEG VERÐLAUN ERU Í BOÐI OG ÝMIS TILBOÐ EINS OG Á SÍÐUSTU NÁMSKEIÐUM. VIÐ LOFUM SKEMMTILEGUM NÁMSKEIÐUM OG ÁRANGURSRÍKUM EF VILJINN ER FYRIR HENDI.

Innifalið í Lífsstílsnámskeiði er:
3 fastir tímar á viku, fleiri fyrir duglega
Frjáls mæting í tækjasal og alla opna tíma í stöðinni
Vigtun og fitumæling vikulega, sentimetramæling þrisvar sinnum
Matardagbækur allan tímann
Matreiðslukennsla
Einkatímar í tækjasal og æfingaáætlun
Fræðsla, uppskriftir, hvatning og heilræði  í vikulegum netpósti
Heitir pottar og gufuböð
Óvæntir happadrættisvinningar allt námskeiðið
Vegleg verðlaun í lok námskeiðs fyrir þau sem ná bestum árangri og mæta best

Umsjón: Aðalbjörg Hafsteinsdóttir.  Með henni kenna Hómfríður Jóhannsdóttir, Anna Ársælsdóttir og Birgitta Guðjónsdóttir.

Svæði

moya - Útgáfa 1.14 2010 - Stefna ehf