
Gravity er byltingarkennd nýung í líkamsrækt. 45-60
mínútna einfaldir, alhliða og öflugir styrktarþjálfunartímar. Unnið er í sérhönnuðum bekk undir stjórn kennara.
Þetta kerfi hentar öllum, byrjendum sem lengra komnum og er í senn öflugt, fljótlegt og árangursríkt. Gott fyrir þá sem eru
lítið fyrir að lyfta og þurfa að styrkja sig á einfaldan en öruggan hátt.
Bjóðum upp á 4 vikna námskeið þar sem þú mætir tvisvar í viku í Gravity en hefur frjálsan aðgang að öllum
öðrum tímum og tækjasal meðan á námskeiðinu stendur. Bjóðum einnig fitumælingu, vigtun og sentimetramælingu ef þið
viljið. Við erum með 12 bekki og skráum því hámark 12 þátttakendur á hvert námskeið og fá því allir
góða leiðsögn.
Gravity extra er 3x í viku og 4 vikna námskeið.
Innifalið í námskeiðunum er: frjáls aðgangur að öllum opnum tímum, tækjasal,
pottum, gufu og búningsaðstöðu
4 vikur, mæting tvisvar í viku: 13.900 kr. 4 vikur mæting 3x í viku 16000 kr. 2000kr afsláttur er ef þú tekur annað námskeið
í framhaldi af öðru.
Næsta námskeið hefst 14. maí og verður einn hópur í boði, vefjagigt kl
17:30.
Nýtt: Gravity extra, er námskeið fyrir
fólk sem er í yfirþyngd. Tveir tímar í viku í Gravity kl 8:30 og einn þoltími sem þjálfari ákveður hverju
sinni hvað er, oftast útitími, þægileg ganga og æfingar. Þjálfarar eru Guðríður Jónasdóttir og Andrea Waage
einkaþjálfarar. 4 vikna námskeið hefst 13. mars.
Tímatafla Gravitynámskeiða haustið 2012
| TÍMI |
MÁNUDAGAR |
ÞRIÐJUDAGAR |
MIÐVIKUDAGAR |
FIMMTUDAGAR |
FÖSTUDAGAR |
| 06:10 |
Gravity opinn |
||||
| 06:15 | Gravity námskeið | Gravity námskeið | |||
| 08:30 | Gravity extra |
Gravity extra |
Gravity extra |
||
| 09:30 | Gravity námskeið 60ára+ | Gravity námskeið 60ára+ | |||
| 16:30 | Gravity opinn | Gravity námskeið | Gravity námskeið | ||
| 17:30 | Gravity vefjagigt | Gravity vefjagigt | Gravity Plús opinn | ||
| 18:30 | Gravity vefjagigt | Gravity vefjagigt |
*Skráning í opna tíma hverrar viku hefst á laugardögum, skráning í afgreiðslu, S: 462-7111.
Abba, Hólmfríður, Guðríður, Andrea og Jóna kenna á námskeiðum. Ósk, Þóra og Anný kenna vefjagigtarhópunum. Óli sér um Gravity Plús sem er extra erfiður tími. Anna, Jóna, Hólmfríður, Guðríður og Abba kenna aðra opna tíma.
Sjá vefsíðu framleiðanda Gravity, efi Sportsmedicine.



