Vinsæl námskeið sem hafa farið sem eldur í sinu um allan heim. Einfaldar, fjölbreyttar, hnitmiðaðar og kraftmiklar æfingar úr hinum
ýmsu íþróttagreinum, eins og fimleikum, frjálsum, olympískum lyftingum, róðri og fleiru.
Námskeið fyrir alla sem vilja ná hámarks alhliða árangri og komast í topp form.
CrossFit konur eru námskeið ætluð konum á öllum aldri og CrossFit mömmur eru 6 vikna námskeið fyrir nýbakaðar
mæður. Börnin geta komið með í tímana eða verið útí vagni eða í gæslu á meðan. Valdar eru bestu CrossFit
æfingarnar og áhersla lögð á aukinn styrk og þol, fræðsla og mælingar. Næsta námskeið hefst 23.
febrúar.
Allir þurfa að fara á 4 vikna grunnnámskeið til að læra krefjandi æfingar og ná færni til að stunda CrossFit af
krafti.
Næstu námskeið kl. 6:10 hefjast 23.
febrúar 2012.
Við höldum úti bloggsíðu með æfingu dagsins í CrossFit: http://crossfitakureyri.blogspot.com/

Kennarar: Ólafur Óskarsson íþróttakennari, Hulda Elma Eysteinsdóttir CrossFit kennari og ÍAK einkaþjálfari, Birna Baldursdóttir CrossFit kennari, íþróttafræðingur og ÍAK einkaþjálfari og Guðrún Arngrímsdóttir IAK einkaþjálfari.
Líkleg tímatafla fyrir CrossFit tíma í janúar 2012:
| TÍMI |
MÁNUD. |
ÞRIÐJUD. |
MIÐVIKUD. |
FIMMTUD. |
FÖSTUD. |
|
| 06:15 |
CrossFit grunnnámsk. |
CrossFit opinn tími |
CrossFit grunnnámsk. |
CrossFit grunnnámsk. |
CrossFit opinn tími |
|
| 08:45 | CrossFit konur |
CrossFit konur |
CrossFit konur |
|||
| 08:30 | CrossFit opinn tími | CrossFit opinn tími | ||||
| 10:30 | CrossFit mömmur | CrossFit mömmur | CrossFit mömmur |



