Hafa samband
headerheaderheaderheader

Boltanámskeiðið

     Góðir tímar þar sem unnið er með stóra bolta, dýnu, teygjur og handlóð.Við höfum sett saman frábæra blöndu af því besta sem hægt er að framkvæma á

Body Fit boltatími

    
Góðir tímar þar sem unnið er með stóra bolta, dýnu, teygjur og handlóð.Við höfum sett saman frábæra blöndu af því besta sem hægt er að framkvæma á boltunum og með boltana. Æfingarnar eru blanda af jafnvægis-, liðleika- og styrktaræfingum þar sem sérstök áhersla er á þjálfun djúpu kvið- og bakvöðvanna, stöðugleika liðamóta, öndun, flæði, einbeitingu og samhæfni.

Æfingarnar auka grunnbrennslu og jafnvægi. Þessir tímar eru ótrulega lúmskir, undirbúa fólk fyrir dagleg átök og ýmsar óvæntar uppákomur.  Við kennum þessa tíma í volgum sal 30-37°.
16.000 kr. fyrir 4 vikur og er innifalinn aðgangur að tækjasalnum og öðrum opnum tímum. Þetta eru tímar fyrir flest alla, konur og karla á öllum aldri :)

Þjálfunarmöguleikar boltans eru ótrúlega margir og óstöðuga umhverfið sem boltarnir bjóða upp á krefst hámarks skynhreyfiþjálfunar, þ.e. þú ert að framkvæma marga hluti í einu, notar öll plön líkamans.

Næsta námskeið byrjar 16. apríl 2012. Það verður á mánudögum kl 16:30, miðvikudögum og föstudögum kl 16:15 og opnir tímar kl. 17:30 á mánudögum og 08:15 á fimmtudögum.

Innifalið er:  Frjáls aðgangur að tækjasal og öllum opnum tímum.
                   Mælingar eins og vigtun, fitumæling, sentimetramæling, þolpróf

Kennarar eru Adda Þóra Daníelsdóttir IAK einkaþjálfari og Fit Pilates kennari (boltakennari) og Aðalbjörg Hafsteinsdóttir Fit Pilates kennari og með mörg boltanámskeið í farteskinu, jógakennari.

Svæði

moya - Útgáfa 1.14 2010 - Stefna ehf